hraunhvammur8.bloggar.is
Er ekki sáttErna Pálrún Árnadóttir
vildi bara segja að ég er ekki sátt með hvernig myndirnar koma hérna inn á og er ég því komin með nýja síðu AFTUR...helv...blog.central.is/eerna
Hvað á maður að segjaErna Pálrún Árnadóttir
Ég hef voðalega lítið að segja.... eins og er .. ég er alltaf að vinna og það er frekar mikil vinna framundan þar sem ég tók að mér að þrífa búðina eftir vinnu.. En meiri vinna meiri peningur ![]()
Cesar og Freyja eru ekkert nema góð.. voru ekkert hrædd um áramótin þeim fannst þetta bara gaman, Freyja var frekar æst í froskana hljóp á eftir þeim og vildi bara éta þá.
Alla vega þá er ég að spá að bóka flug til spánar í ágúst. Mamma pabbi og Tanta fóru til spánar í dag til að ganga frá húsakaupunum . .
Ætla að reyna setja svo inn fleiri myndir. . þetta er svo svakalega hægvirkt eitthvað![]()
Nýjar myndirErna Pálrún Árnadóttir
Jæja þá tókst mér loksins að setja inn myndir frá konukvöldinu á trix. En af einhverjum ástæðum þá er eins og sumar þeirra séu bilaðarÉg reyni að setja fleiri inn í kvöld.
1 ár akkurat í dagErna Pálrún Árnadóttir
Góðan daginn og gleðilega jólBara sá púnktafærsla núna
*Byrjaði daginn á því að sofa feitast yrif mig, var ekki mætt í vinnu fyrr en klukkan 13:00
*Teddi átti afmæli á laugardaginn og var, smá partý heima en það voru ekki margir sem mættu en allavega góðir vinir þar á ferð
*Erum búin að versla allar jólagjafir og það verður pakkað inn í kvöld.
*Og það er akkurat eitt ár síðan við fluttum inn
Verð að halda áfram að vinna
Já SÆLLLLErna Pálrún Árnadóttir
Halló .. hvað er að ske það er bara nýtt blogg :)Svo sem ekki mikið búið að gerast í okkar lífi , nema bara að Teddi er búinn að vera vinna með pabba heima hjá henni Stellu (hún átti heima við hliðina á mömmu og pabba ) Þeir eru búnir að vera vinna hjá henni í vogunum því hún var að flytja og er að taka allt í gegn. Stella er nú meira krúttið ,, ég er BÚIN að REYNA setja inn myndir en það er ekki alveg að virka hjá mér
Svo verða jólagardínur settar upp og reynt að skreyta því við förum efir 3 vikur austur. ERUM AÐ DEYJA úr spenningi. Svo talaði ég við Töntu og við ætlum á hestbak milli jól og nýárs get ekki beðið
Ætla reyna að setja inn þessar myndir um helgina vona að það gangi upp, er með fulla myndavél.
Þá held ég að ég bara slútti þessu
Jólin nálgast HRATTErna Pálrún Árnadóttir
Jæja þá er bara 20.nóvember og jólin eru að koma á ógnárhraðaVið ætlum að reyna að versla allar jólagjafir bara núna helgina 1. og 2.des
Ætlum að vera frekar snemma í þessu því að við förum austur 22.desember og verðum fyrir austan um jólin ... Við gistum í húsinu hennar Töntu því við erum með hundana, það er bara eftir að vera kósý. En við verðum mikið á höfn því við ætlum að taka jólaþrif á bílum.
Ég er byrjuð aðeins að taka jólahreingeringu, ég bónaði alla íbúðina í gærkvöldi, held að ég geri það einu sinni enn svona rétt áður en við förum.
Svo verðum við í bænum um áramótin hjá mömmu og pabba
En ég held að ég hafi þetta ekki lengra í bili. Love
Smá svona um helginaErna Pálrún Árnadóttir
Jæja hérna koma nokkrir punktar um helgina* Erum að fara í leikhús í kvöld með vinnunni minni, á sýningu sem heitir Óhapp
* Laugardagur kúra og fara út með hundana
* Laugardagskvöldið ég , Agga og Hrefna ætlum á konukvöld á Trix ( myndavélin fær að fylgja með )
* Sunnudagur ... sofa , leti , út með hundana og elda góðan mat mmmmmm.
Svo set ég inn myndir af helginni.
Erfitt að sofa á nærturnaErna Pálrún Árnadóttir
Hæ hæ .. já ég hef frekar lítið að segja nema að Teddi er að vinna á næturna hjá Eimskip . hann byrjaði til dæmis í gær um 10 leitið í vinnunni og svo þegar það átti að koma að því að fara sofa þá var það frekar erfitt, ÞAR sem ég er mjög vön að hafa Tedda við hliðina á mér og kúra hjá honum.Ég var ekki sofnuð fyrr en rúmlega hálf 3 í nótt
Svo þegar ég var vöknuð í morgun og var að klæða mig þá kom Teddi minn heim úr vinnunni alveg dauðþreyttur.
Ætla að reyna að setja fleiri myndir um helgina .. svo er líka konukvöld á TRIX mikið í gangi þar ..spurning hvort að maður eigi að fara.
Svo vona ég að Teddi fari að blogga. Við erum líka að bíða eftir að Freyja fari að lóða svo við getum fengið hvolpa
En held að ég hef það ekki lengra.
Komnar nýjar myndirErna Pálrún Árnadóttir
Jæja þá er ég loksins búin að setja inn myndir síðan á afmælinu mínu, svo er þarna líka hallowen party en ég er ekki viss um að það eru góða myndir
Við skelltum okkur í árlega hundagöngu sem er á vegum HRFI og þetta var bara mjög gaman sjáum alveg helling af flottum hundum, .
ætla að vera svo duglegri að taka myndir þegar við gerum eitthvað svona, ( gleimdi myndavélinni í hundagöngunni)
Allir að kíkja á myndirnar
Fáránleg þjónustaErna Pálrún Árnadóttir
Ég verð nú bara að fá að deila einu með ykkur...
Þannig er málið að í gærkvöldi eða réttara að segja um nóttina þá pantaði ég og teddi pizzu hjá DOMINOS við pöntuðum fyrir klukkan 2 og vildum fá þetta sent heim því mikil hálka var og við bæði líka búin að fá okkur bjór.
Heyrðu við fengum ekki hel.... pizzuna fyrr en klukkan 4 !!!!!
ég spurði strákinn akkuru þetta tæki svona langan tíma og að maður ætti að borga fyrir kalda pizzu. Hann sagði að hann var búinn að vera að leita af húsinu í 2 TÍMA !!! 
Þetta er náttlega bara vittleysa og við þurftum að byrja á því að setja pizzuna í örbylgjuofninn til að hún verði heit.
Núna er ég að bíða eftir að Dominos opni svo ég geti talað við þetta fólk. Þetta verður bara til þess að maður verslar ENGANN VEGINN aftur hjá dominos.
